fbpx
Kornið og ný verðskrá á Yara áburði

Kornið og ný verðskrá á Yara áburði

Verðskrá Yara áburðar fyrir árið 2018/19  er komin út.  Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur,  breytingar á gengi og pantað sé fyrir 15. janúar 2019.  Í boði eru hagstæðir greiðslusamningar eða  afslættir. Sé greitt fyrirfram fyrir 15. mars 2019 er 8% afsláttur og 5% ef greitt er fyrir 15. maí 2019.

Þetta skiptið hefur Kornið tekið breytingum og er nú að finna stuttar og fróðlegar greinar í því, ásamt viðtali við sigurvegara gróffóðurkeppni Yara á Íslandi 2018 og upplýsingar um Yara áburði.  Skoðið nýja Kornið hér.

Verðhækkun á áburði 
Áburðarverðskrá Yara hækkar um 15% milli ára sem skýrist af hækkun á áburði í evrum á erlendum mörkuðum og gengisbreytingum. Köfnunarefnisáburður hækkar um 12%, NP áburður um 18% og NPK áburður um 15% fyrir utan eina tegund sem hækkar um 18%.

Hagstætt tilboð á  flutningi á áburði heim á hlað ef pantað er fyrir 15. janúar 2019 
1000 kr/tonn án vsk. fyrir 6 tonn og meira.

Fimm tegundir sem allar innihalda selen
Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

Einkorna gæðaáburður 
Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa. Einnig þarf að huga  sérstaklega að sýrustigi jarðvegs til að nýting áburðarefna sé hámörkuð og vekjum við athygli á Kalksaltpetri og Dolomit magnesíum-kalki sem stendur til boða á hagstæðu verði.

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður
Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða. 

Hér má finna verðskránna yfir Yara áburð

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Afhending

Hér erum við

Hafa samband