Búvörudeild Sláturfélag Suðurlands innkallar hjálma frá Casco af gerðinni Nori Hufeisen – tegundanúmer 1709.
Innköllunin er af tilstuðlan öryggisreglugerðar sem hjálmurinn uppfyllir ekki og hefur umrædd tegund verið tekin úr sölu í verslunum Búvörudeildar Sláturfélags Suðurlands. Við hvetjum þá viðskiptavini sem eiga umræddan hjálm að skila honum í verslanir okkar á Fosshálsi 1, Reykjavík eða Dufþaksbraut 3, Hvolsvelli og fá honum skipt eða endurgreitt.
![image.jpg](https://www.buvorur.is/wp-content/uploads/2024/02/image.jpg.jpg)