fbpx
Söfnun fyrir Krabbameinsfélagið – Plastsala 2018

Söfnun fyrir Krabbameinsfélagið – Plastsala 2018

Síðasta sumar gátu bændur verslað hjá okkur bleikt og blátt plast til styrktar Krabbameinsfélaginu.  Þetta árið bættist við gult plast og var það til styrktar krabbameinssjúkum börnum.

Það safnaðist í heildina 1.200.000 kr og var sala Sláturfélags Suðurlands 75% af þeirri upphæð.  Styrkurinn skiptist á milli þriggja aðila; bænda, Trioplast (sænska plastframleiðandans) og þeirra sem seldu litaða plastið hérlendis.

Bleiku, bláu og gulu rúll­urn­ar eru 1.900 metr­ar að lengd en hinar hefðbundnu hvítu, svörtu og grænu eru all­ar 1.500 metra lang­ar. Þó bleiku, bláu og gulu plastrúll­urn­ar voru ei­lítið dýr­ari,  þá var metra­verð þeirra ódýr­ara en hinna.  Hér gátu því bændur slegið tvær flugur í einu höggi og bæði keypt hlutfallslega ódýrara plast og styrkt Krabbameinsfélagið um leið.

Okkur þætti gaman að fá sendar myndir af lituðu rúllunum frá bændum!

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Afhending

Hér erum við

Hafa samband