fbpx

Stalosan F 15 poki

Stalosan F 15 poki

4.563 kr. Verð með vsk

3.680 kr. Verð án vsk

Á lager

Vörunúmer: DLGS701 Flokkur:

Lýsing

Stalosan F er náttúrulegur sótthreinsimiðill hannaður til að bæta
hreinlæti og heilbrigði í útihúsum. Það vinnur á bakteríum, sveppum,
vírusum, sníkjudýrum, raka, ammóníaki og brennisteinsvetni.

Stalosan F er hægt að nota sem undirburð og til að hreinsa útihús.
Stalosan F inniheldur aðeins virk efni, ólíkt mörgum öðrum
sótthreinsimiðlum þar sem virku efnin mynda aðeins hluta af heildinni.
Það þýðir að nýtingin er betri.
Stalosan F er hannað með það í hug að hamla fjölgun skaðlegra örvera.
Í nútímaræktun er meiri sýkingarhætta sökum fjölda dýra og annarra
álagsþátta.

Stalosan F er náttúrulegt duft gert úr steinefnum með lágt sýrustig.
Það virkar með því að lækka sýrustig umhverfisins og gerir það
óhagstætt fyrir skaðlegar örverur.
Það sem gerir Stalosan F betra en mörg önnur efni á markaðnum er að
sýrustig þess er nær því sem er á yfirborði húðar dýranna. Þunnt
fitulag er yfir húð dýra og manna sem hefur þann tilgang að varna gegn
aðgengi baktería en flest sótthreinsiefni eyða þessari fituhimnu.
Stalosan F hefur hinsvegar ekki áhrif á hana.
Þar sem Stalosan F er ekki skaðlegt fólki eða dýrum þá er óhætt að
nota það sem undirburð og sem hreinsimiðil í námunda við dýr og menn.

Uppsöfnun ammóníaks getur haft ýmsa heilsufarskvilla í för með sér.
Til dæmis getur það aukið tíðni sjúkdóma, hægt á vexti, lækkað
mjólkurnyt, minnkað fóðurinntöku og fóðurnýtingu. Stalosan F hefur
þann hæfileika að geta bundist ammóníaki og bætir með því umhverfið og
og andrúmsloftið bæði hvað varðar gæði og lykt.

Með notkun Stalosan F eykst fóðurnýting og framleiðsla.
Stalosan F hefur verið á markaðnum í rúm 40 ár og hafa ekki verið
tilkynnt nein neikvæð áhrif á menn eða dýr.
Hinsvegar hafa verið gerðar margar rannsóknir sem sýna fram á
virkni Stalosan F á ýmsum sviðum.

Það er óhætt að nota Stalosan F í námunda við öll dýr, þar með talin
ungviði.

Stalosan F bætir umhverfið í útihúsum án þess að ýta undir vöxt
ónæmra baktería.

Smelltu til
að skoða

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Stalosan F 15 poki”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

50 g á fermeter dreift daglega í þrjá daga, en eftir það 1-2x í viku.
Stalosan F skal dreifa yfir undirburð!
Ef vandamál er til staðar (til dæmis vegna sýkingar eða eftir
meðhöndlun dýralæknis) má nota Stalosan F daglega í 8 daga.

Afhending

Hér erum við

Hafa samband