fbpx
Fóður verðlisti 2023-2024 – lækkað verð

Fóður verðlisti 2023-2024 – lækkað verð

Sláturfélag Suðurlands tilkynnir verðlækkun á öllu nautgripa fóðri frá  18.09.2023 og gilda verðin óbreytt til 1. ágúst 2024.

Verðlækkanir eru mismunandi eftir tegundum, frá 6 til 10%.

Tekið skal fram að fóðurverð hjá SS hefur ekki tekið breytingum síðan 5. október 2022.

SS festir verð og magn á fóðri til ákveðins tíma. Þetta tryggir bændum óbreytt verð á því tímabili.  Félagið vill með þessu fyrirkomulagi auðvelda bændum að gera kostnaðaráætlanir fyrir rekstur búanna.

Allt fóður hjá SS er óerfðabreytt.

Hér er hægt að nálgast fóður verðlistann á pdf. formi.

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Afhending

Hér erum við

Hafa samband