fbpx

DogCoach vetrarjakki grár

DogCoach vetrarjakki grár

36.990 kr. Verð með vsk

29.831 kr. Verð án vsk

Vörunúmer: DC19 Flokkur:

Lýsing

Nýr vetrarjakki frá DogCoach í unisex sniði!

DogCoach vörurnar eru frábærar í alla útivist með hundinum þínum,
hvort sem það er í þjálfun eða göngutúr. Jakkinn er 100% vind- og
vatnsheldur að 5000 mm, andar vel og hefur verið meðhöndlaður með
antistatic efni sem kemur í veg fyrir að straumur myndist í efninu og
færist í hár eða hundinn.

Eftirfarandi eiginleikar jakkans gera hversdagslífið með hundinum
þínum einfaldara og skemmtilegra:
- Endurskin sem hægt er að bretta upp og niður á ermum
- Stór vasi aftaná sem rúmar tauma, dót og ýmislegt annað.
- Tísta í hálsmáli til að ná athygli hundsins
- Nammivasi sem auðvelt er að opna með annari hendi. Einnig er hægt að
taka vasann úr og hengja utan á úlpuna eða aðrar flíkur. Auðvelt að
taka úr og skola.
- Fullt af vösum.
- Gat fyrir kúkapoka á vasa
- D-hringir sem hægt er að festa clicker í á báðum ermum

DogCoach vörur framleiddar 2020 og seinna eru ekki í plastumbúðum. Í
staðinn koma þær í bómullarpoka sem hægt er að endurnýta.

Stærðir: XS - 3XL
Litir: Grár (Anthracite)

Hægt er að sérpanta jakkann í rauðu (Burgundy) og bláu (Forest Lake).
Sérpantanir eru bindandi og geta tekið nokkrar vikur að berast.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “DogCoach vetrarjakki grár”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Afhending

Hér erum við

Hafa samband