fbpx
Áhugamannadeild Equsana hefst þann 4. febrúar 2021

Áhugamannadeild Equsana hefst þann 4. febrúar 2021

Áhugamannadeild Equsana hefst fimmtudaginn þann 4. febrúar kl. 19:00 með fjórgangi, en þetta skiptið verður deildin haldin án áhorfenda.  Þetta er í fjórða sinn sem Equsana styrkir áhugamannadeildina.  Í ár eru 13 lið skráð; Voot-liðið, Hofstaðir/Úrvalshesta/Votamýri-liðið, Lið Heimahaga, Lið Vagna og Þjónustu, Lið Pure North, Lið Tölthesta, Lið Stjörnublikks, Lið Camper Iceland, Lið Húnvetningana, Lið ZO-ON, Lið Hvolpasveitarinnar, Lið Fákafars og Lið Kaffivagnins.

Þar til það verður leyfilegt að opna fyrir áhorfendur í höllina þá er boðið upp á beinar útsendingar frá keppniskvöldunum.  Áhugamannadeild Equsana hefur gert samkomulag við Alendis TV sem mun sýna beint frá keppninni í allan vetur. Hægt er að kaupa dagsáskrift á kr. 2.490 eða mánaðaráskrift á kr. 3.490 og fá þá í leiðinni aðgang að öðrum viðburðum sem Alendis TV sýnir beint frá. Hægt er að nálgast áskrift á www.alendis.tv

Dagskrá deildarinnar er :
Fimmtudagur 4 febrúar : Fjórgangur
Fimmtudagur 18 febrúar : Fimmgangur
Fimmtudagur 4 mars : Slaktaumatölt
Fimmtudagur 18 mars : Tölt – lokakeppni

Spennan er mikil og æfingar eru löngu hafnar.
Minnum á facebook síðuna – Áhugamannadeild Equsana og instagrammið @ahugamannadeildspretts
Hlökkum til að „sjá“ ykkur á Alendis TV fimmtudaginn 4 febrúar kl. 19:00

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Afhending

Hér erum við

Hafa samband