Lýsing
Fínt sag sem inniheldur 10% Stalosan F.Þurrkar gríðarlega vel.
Stalosan F er náttúrulegur sótthreinsimiðill hannaður til að bæta
hreinlæti og heilbrigði í útihúsum. Það vinnur á bakteríum, sveppum,
vírusum, snýkjudýrum, raka, ammóníaki og brennisteinsvetni. Stalosan F
er náttúrulegt duft gert úr steinefnum með lágt sýrustig. Það virkar
með því að lækka sýrustig umhverfisins og gerir það óhagstætt fyrir
skaðlegar örverur. Það sem gerir Stalosan F betra en mörg önnur efni á
markaðnum er að sýrustig þess er nær því sem er á yfirborði húðar
dýranna. Þunnt fitulag er yfir húð dýra og manna sem hefur þann
tilgang að varna gegn aðgengi baktería en flest sótthreinsiefni eyða
þessari fituhimnu. Stalosan F hefur ekki áhrif á hana.
Magn á bretti: 39 ballar
Umsagnir
Engar umsagnir komnar